![Ormadagar hafa verið haldnir hátíðlegir í nokkur ár, hér er mynd frá árinu 2014.](/static/news/xs/1483458570_ormadagar32014-copy.jpg)
26.05.2015
Fréttir
Barnamenningarhátíð í Kópavogi
Ormadagar, barnamenningarhátíð Kópavogsbæjar, hefjast 26. maí og lýkur með glæsilegri uppskeruhátíð í menningarhúsum bæjarins og í Kópavogskirkju helgina 30. og 31. maí. Þema hátíðarinnar er: Gamalt og nýtt og verður áhersla lögð á gamla útileiki og gömul leikföng. Allir eru velkomnir og ókeypis er inn á alla viðburði. Ormadagarnir hefjast með skipulögðum heimsóknum leik- og grunnskólabarna í öll menningarhús bæjarins fram eftir viku. Yfir 2.000 börn hafa boðað komu sína.