- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónusta í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barns.
Með samþættingu þjónustu fylgja engin ný úrræði heldur fjallar hún um það hvernig þeir ólíku þjónustuaðilar sem koma að börnum og fjölskyldum eiga að vinna saman að málum þeirra og leita saman að lausnum til að mæta þörfum hverju sinni.
Markmiðin með samþættingu þjónustu er að samstarf í kringum börn og fjölskyldur sé í skýrum farvegi og tryggt að barnið sé hjartað í kerfinu.
Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Frá meðgöngu og fram að skólagöngu barns er tengiliður í heilsugæslu. Þegar barn er við nám í leik-, grunn- eða framhaldsskóla er tengiliður starfsmaður skólans. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns.
Foreldrar og börn geta alltaf leitað sjálf til tengiliðar í nærumhverfi barnsins og óskað eftir ráðgjöf eða samþættri þjónustu. Einnig er hægt að senda beiðni um samtal við tengilið í gegnum Þjónustugátt Kópavogsbæjar. Smellt er á Umsóknir og valið leik- eða grunnskólamál eftir því sem við á.
Upplýsingar um tengiliði í Kópavogi er að finna á heimasíðum skólanna.
Barn sem hefur þörf fyrir fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi til lengri tíma fær málstjóra frá barna- og fjölskylduteymi velferðarsviðs eða barnaverndarþjónustu Kópavogs eftir því sem við á. Hlutverk málstjóra er að veita frekari upplýsingar og ráðgjöf og leiða samþættingu þjónustu. Málstjóri ber ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýrir stuðningsteymi og fylgir því eftir að þjónusta sé veitt í samræmi við áætlun.
Samþætting þjónustu er unnin samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna sem tóku gildi 1. janúar 2022 og eru í innleiðingarferli til loka árs 2026.
Á heimasíðunni www.farsaeldbarna .is má finna frekari upplýsingar um árangur barna. Kópavogsbær gætir að öryggi persónuupplýsinga með viðeigandi ráðstöfunum samkvæmt ákvæðum persónuverndarlaga og reglum þar að lútandi. Allt starfsfólk sem kemur að vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við samþættingu þjónustu er bundið þagnarskyldu.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin