Hópþjálfun

Fyrirkomulag Virkni og Vellíðan miðast við hópþjálfun undir handleiðslu þjálfara 2-3x í viku í um 45 mínútur í senn. Á æfingum er lögð áhersla á fjölbreytta þjálfun og er það í samræmi við það sem rannsóknir hafa sýnt, að fjölþætt þjálfun sem innheldur styrktar-, þol-, liðleika- og jafnvægisæfingar eru æskilegar eldra fólki. Hefðbundnar æfingar fara fram innan íþróttahúsanna þriggja Breiðablik ( Fífunni ), HK ( Kórnum ). Valæfingar fara yfirleitt fram í öllum þremur félögunum, Breiðablik, HK og Gerplu ( íþróttamiðstöð Versölum ) en einnig hafa þær farið fram í félagsmiðstöðvum eldri borgara, Gullsmára, Gjábakka og Boðaþingi. Þjálfarar útbúa 6-8 vikna æfingaráætlun og aðlaga æfingar út frá líkamlegri getu hvers og eins.

Öðruvísi æfingar

Á miðvikudögum eru öðruvísi æfingar í boði fyrir þá sem vilja æfa 3x í viku. Markmið með þeim er meðal annars að kynna fyrir  þátttakendum fjölbreytt hreyfiúrræði og heilsueflingu en einnig til þess að að ýta undir áhugahvöt, félagslegt umhverfi og skemmtun. Það er mismunandi hvað er í boði á hverri önn, sem dæmi hefur verið boðið uppá Zumba, Quigong, Joga, Bandvefslosun, Golf og æfingar í fimleikasal Gerplu.  Anna slagið er boðið uppá kynnningartíma á fjölbreyttumhreyfiúrræðuminnan bæjarins fyrir þátttakendur í Virkni og Vellíðan.

Heilsulæsi

Virkni og Vellíðan leggur einnig áherslu á heilsulæsi hjá þátttakendum og því er reglulega boðið upp á fræðslu fyrirlestra. Þá fáum við til okkar fræðimenn sem flytja fyrir okkur erindi um ýmis málefni á borð við næringu, svefn, geðheilsu og fleira. Á hverri önn stendur Virkni og Vellíðan einnig fyrir félagslegum viðburðum.

Tímabil

Haustönn stendur yfir í 4 mánuði. Önnin hefst um miðjan/lok ágúst og er fram í miðjan desember. Vorönn stendur yfir í 5 máuði, hefst í upphafi janúar og lýkur eftir fyrstu vikuna í júní.

Verð og skráning

Greitt er fyrir heila önn í einu svo æfingagjöld miðast við  18.000 kr. á haustönn og 22.500 kr. á vorönn 2025

Hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið virkniogvellidan(hjá)gmail.com  eða í gegnum skráningarhlekk hér fyrir neðan.  

Skrá mig