02.11.2016
Bláu ruslatunnurnar
í Kópavogi verða frá deginum í dag bæði fyrir plast og pappír, í stað þess að vera eingöngu fyrir pappír. Tunnurnar verða tæmdar oftar en gert hefur verið hingað til, á 16 daga fresti í stað 28 daga fresti áður. Gráu tunnurnar, fyrir almennt sorp, verða sem fyrr tæmdar á 14 daga fresti.