- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Kársnesið nær frá Hafnarfjarðarvegi í austri og vestur að Kársneshöfn.
Eins og allsstaðar í Kópavogi eru falleg og skemmtileg svæði á Kársnesi sem gaman er að fara um.
Sundlaug Kópavogs var opnuð 1967. Í dag er Sundlaug Kópavogs ein vinsælasta sundlaug landsins. Þar má finna skemmtilega vaðlaug fyrir yngri kynslóðina og rennibrautir fyrir þá eldri. Einnig eru á svæðinu heitir potta, kaldur pottur, 50 metra sundlaug, innilaug og gufubað. Í lauginni er einnig líkamsræktarstöð. Á góðum sumardegi er sundlaugin vinsæll samkomustaður Kópavogsbúa og annarra gesta.
Nánari upplýsingar má finna hér.
Rútstún er perla í hjarta í Kársness. Svæðið nota Kópavogsbúar til að koma saman á 17. júní ár hvert og gera sér glaðan dag. Svæðið er einstaklega skjólsælt og er það ekki síst því að þakka að árið 1959 var farið í að gróðursetja skjólbelti umhverfis túnið. Þar er leiksvæði fyrir börn og einnig hægt að renna sér á sleða á veturna. Frábært að skella sér á Rútstún til leiks og fara svo í sund í Kópavogslaug sem er í göngufæri frá túninu.
Á Borgarholti stendur eitt af kennileitum Kópavogs, Kópavogskirkja. Kirkjan var reist á árunum 1958 – 1962. Kirkjan sést víða að og er ein af þekktari byggingum Kópavogs. Af holtinu er frábært útsýni í allar áttir. Á góðum degi er hægt að sjá allan fjallahringinn umhverfis höfuðborgarsvæðið ásamt því sem Snæfellsjökull blasir við í fjarska. Borgarholt er ekki síður athyglisvert fyrir þær sakir að þar er að finna um fjórðung tegunda í flóru Íslands.
Var fyrsti gæsluvöllurinn í Kópavogi og hefur verið starfræktur í rúm 50 ár. Hlégerðisvöllur er í daglegu tali oft nefndur Stelluróló eftir konu sem vann á vellinum og hét Guðbjörg Arnórsdóttir. Er starfræktur gæsluvöllur í Hlégerði á þeim tíma er leikskólar bæjarins eru í sumarfríi. Völlurinn er í miklu skjóli og bíður upp á skemmtun og leik fyrir alla.
Kópavogstún liggur vestan við Hafnarfjarðarveg. Túnið er stórt og geymir mikla sögu. Á staðnum er minnisvarði um svokallaðan Kópavogsfund sem fram fór 1662 þar sem sögur herma að fyrsta flugeldasýningin á Íslandi hafi farið fram þar. Kópavogstún hefur verið vinsælt til útvistar. Einnig hefur túnið verið notað sem tjaldstæði á fjölmennum viðburðum í sveitafélaginu. Á svæðinu má finna tóftir af þingstaðnum og einnig af gömlu fangahúsi sem stóð syðst á túninu. Þingstaðurinn var friðlýstur 1938.
Kársnesstígur liggur umhverfis Kársnesið sem er vestasti hluti Kópavogs. Á leiðinni er fjöldinn allur af leiksvæðum og auðvelt aðgengi er frá stígnum að Sundlaug Kópavogs. Stígurinn tengist bæði göngustíg í Fossvogi og Kópavogsdal. Hann er mjög vinsæll hjá gangandi og hjólandi vegfarendum. Við stíginn er bláfánahöfn við Fossvog sem er svæði Siglingaklúbbsins Ýmis og smábátahöfn vestast á nesinu. Fjaran við stíginn er vinsæll áningastaður og ekkert er skemmtilegra en að skoða lífið í fjörunni í skemmtilegum göngu eða hjólatúr.
Sjá myndavef