- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Marbakkabraut í Kópavogi, heimili fyrir fimm fatlaða einstaklinga, var tekið í notkun nýverið eftir gagngerar endurbætur. Þá eru í Austurkór fjórar nýjar íbúðir fyrir fatlað fólk tilbúnar til notkunar. Endurbætt húsnæði á Marbakkabraut var vígt formlega í dag við hátíðlega viðhöfn. „Það er ánægjulegt hversu vel hefur tekist til við endurbæturnar, Kópavogsbær hefur lagt sig fram um að sinna vel málefnum fatlaðra frá yfirtöku málaflokksins frá ríkinu,“ sagði Ármann Kr. Ólafsson við tækifærið.
Marbakkabraut kom til bæjarins við yfirtöku málefna fatlaðra frá ríkinu árið 2011. Við endurbætur var skipt um raf- og pípulagnir, gólfefni og hurðar auk þess sem eldhúsinnrétting og fataskápar voru endurnýjaðir. Þá var aðstaða fyrir forstöðumann og starfsmenn færð til. Allar breytingar eru til mikillar fyrirmyndar og er það von bæjaryfirvalda að allt hafi tekist þannig til að íbúar séu ánægðir með hið endurbætta húsnæði.
Íbúar Marbakkabrautar fluttu tímabundið í Austurkór 3A á meðan á breytingum stóð. Þar eru nú tilbúnar til notkunar fjórar nýjar félagslegar leiguíbúðir fyrir fatlað fólk sem teknar verða í notkun í næstu viku.
Kópavogsbær tók við málefnum fatlaðs fólks af ríkinu í ársbyrjun 2011. Þá lá fyrir biðlisti 40 einstaklinga eftir húsnæði með sértækri þjónustu. Bæjarfélagið hóf strax vinnu við að tryggja nauðsynlegar úrbætur. Þrír nýir þjónustukjarnar, við Skjólbraut, Kópavogsbraut og í Austurkór, hafa verið teknir í notkun frá yfirfærslu.