Foreldrar geta leitað aðstoðar hjá skólanum ef grunur vaknar um:

  • námserfiðleika
  • þroskafrávik
  • félagsleg vandamál
  • einelti

Best er að hafa samband við kennara barnsins eða skólastjórnendur.

Einnig er hægt að leita til skólaþjónustu Kópavogs.

Skólaþjónusta leggur áherslu á:

  • snemmtæka íhlutun
  • gott upplýsingaflæði milli skólastiga
  • samvinnu
  • fræðslu fyrir börn, foreldra og starfsfólk

Skil skólastiga

Þegar börn fara úr leikskóla í grunnskóla eru haldnir skilafundir milli starfsfólks leik- og grunnskóla að vori. Á þeim fundum veitir starfsfólk leikskóla upplýsingar til grunnskóla og frístunda um stöðu hvers barns. Jafnframt er fundað með foreldrum og fulltrúum beggja skólastiga í einstaka málum. Einnig heimsækir starfsfólk beggja skólastiga hvert annað til þess að tryggja gott upphaf skólagöngu.

Þegar nemendur fara úr grunnskóla í framhaldsskóla skilar grunnskólinn ítarlegri greinargerð um nemendur sem hafa fengið víðtækan stuðning í námi. Foreldrar, nemandinn, kennarar og fagaðilar taka þátt í að móta greinargerðina sem nefnist tilfærsluáætlun (sjá nánar reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla og reglugerð um nemendur með sérþarfir í framhaldsskóla).

Barn getur með heimild skólastjóra grunnskóla, að fenginni umsögn sérfræðiþjónustu, hafið grunnskólanám fyrir 6 ára aldur og útskrifast úr grunnskóla áður en tíu ára grunnskólanámi er lokið. Ákvörðun um slíkt er tekin í samvinnu foreldra og skólastjórnenda viðkomandi skóla. Barn getur með heimild leikskólanefndar, að fenginni umsögn sérfræðiþjónustu og leik- og grunnskólastjóra verið ári lengur í leikskóla.  

Grunnskólar

Óski foreldrar eftir sér stuðningi fyrir barn sitt eða aðkomu sérfræðinga skólans, beina þeir óskum sínum fyrst til umsjónarkennara barns síns eða skólastjórn skólans.

Í öllum grunnskólum starfa sérkennarar, talmeinafræðingar, náms- og starfsráðgjafar og sálfræðingar. Önnur ráðgjöf sérfræðinga s.s. kennsluráðgjöf er veitt gegnum grunnskóladeild menntasviðs.

Leikskólar

Í leikskólum starfa sérkennslustjórar sem veita m.a. ráðgjöf til foreldra.

Önnur sérfræðiþjónusta s.s. þjónusta sálfræðinga, iðjuþjálfa, talmeinafræðinga og sérkennsluráðgjafa er veitt gegnum leikskóladeild menntasviðs Kópavogsbæjar.

Nánari upplýsingar

Allar nánari upplýsingar gefa starfsmenn menntasviðs annars vegar um leikskóla og grunnskóla í síma 441 0000