Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs, sem eru í samræmi við menningarstefnu Kópavogsbæjar.

Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun.

Auglýst er árlega eftir umsækjendum. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir.

Rafræn umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðu menningar í Kópavogi.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi