Almenningssamgöngur

Strætó bs. hefur umsjón með almenningssamgöngum í Kópavogi, en fyrirtækið er í eigu sveitarfélaganna sjö sem mynda stór-höfuðborgarsvæðið.

Aðalskiptistöð Strætó í Kópavogi er við Hálsatorg í Hamraborg en þangað liggja leiðir allra vagna sem aka um bæinn sem og vagna til og frá nágrannasveitarfélögum. Leiðir númer 1, 2, 4, 24, 28 35 og 36 aka um bæjarland Kópavogs.

 Verið er að vinna að breytingum á leiðakerfi Strætó sem er hugsað til að styðja við leiðakerfi Borgarlínunnar þegar það kemst í gagnið. Nánar má lesa um nýja leiðakerfið á heimasíðu Strætó og um borgarlínuverkefnið á heimasíðu borgarlínunnar

 Allar upplýsingar um leiðir og leiðarkerfi má finna á heimasíðu Strætó.

Síðast uppfært 19. mars 2024