![Birgir Jakobsson landlæknir, Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs og Ármann Kr. Ólafsson …](/static/news/xs/heilsueflandi_undirskrift.jpg)
11.08.2015
Fréttir
Lýðheilsa og lífsgæði verði efld
Kópavogsbær varð í dag aðili að verkefninu Heilsueflandi samfélag. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs, Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs og Birgir Jakobsson landlæknir rituðu undir samstarfssamning en verkefnið miðar að því að efla lýðheilsu og lífsgæði íbúa Kópavogsbæjar með markvissum hætti.