Fasteignagjöld
Fasteign telst afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.
Fasteign telst afmarkaður hluti lands, ásamt lífrænum og ólífrænum hlutum þess, réttindum sem því fylgja og þeim mannvirkjum sem varanlega eru við landið skeytt.
Hægt er að nálgast seðlana inn á island.is og þjónustugátt Kópavogsbæjar. Engin breyting verður hjá þeim sem greitt hafa með boðgreiðslum eða í greiðsluþjónustu.
Við álagningu fasteignagjalda er afslátturinn reiknaður út frá álagningu 2023 vegna skatttekna ársins 2022, þ.e. samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7) og fjármagnstekjum samtals (reitur 3.10)
Félög og félagasamtök, sem eru fasteignaeigendur í Kópavogi og í húsnæðinu fer eingöngu fram starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf, eiga þess kost að sækja um styrki til greiðslu fasteignaskatts af viðkomandi fasteign
Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin í heild eru greidd fyrir 16. febrúar ár hvert. Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0130-26- 74, kt. 700169-3759.
Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorku-lífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð, ekki er þörf á að sækja um það sérstaklega. Það kemur sjálfkrafa inn.
Hægt að sjá nánar í gjaldskrá fasteignagjalda.
Gjalddagar verða 8; fyrsti gjalddagi 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar (mars - september).
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Ef gjöld eru samtals lægri en kr. 50.000 er um einn gjalddaga að ræða og er hann 1. mars.
Allar þessar upplýsingar eru notaðar við álagningu fasteignagjalda, leiðréttingar, reikningagerð og innheimtu sem fer fram hjá Innheimtudeild Fjármálasviðs Kópavogsbæjar.
Eigendaskráning húsa og lóða er í höndum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og er hún í samræmi við þinglýst skjöl/gögn.
Byggingarfulltrúinn í Kópavogi sendir HMS upplýsingar og gögn um nýbyggingar,viðbyggingar, eldri byggingar sem er breytt, hús sem eru rifin og aðrar viðeigandi upplýsingar.
Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð. Álagningarstofninn er fenginn frá HMS 31. desember ár hvert auk þess sem fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og ný mannvirki í hlutfalli við ársálagningu frá næstu mánaðarmótum eftir að þau eru skráð og metin í Fasteignaskrá. Fasteignaskattur fellur niður næstu mánaðamót eftir að mannvirki er afskráð í HMS.
Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.
Álagningarstofninn er fenginn frá HMS 31. desember ár hvert auk þess sem fasteignaskattur leggst á nýjar lóðir og ný mannvirki í hlutfalli við ársálagningu frá næstu mánaðarmótum eftir að þau eru skráð og metin í Fasteignaskrá.
Fasteignaskattur fellur niður næstu mánaðamót eftir að mannvirki er afskráð í HMS. Byggingarfulltrúinn í Kópavogi sendir HMS upplýsingar og gögn um nýbyggingar, viðbyggingar, eldri byggingar sem er breytt, hús sem eru rifin og aðrar viðeigandi upplýsingar. Eigendaskráning húsa og lóða er í höndum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og er hún í samræmi við þinglýst skjöl/gögn. Allar þessar upplýsingar eru notaðar við álagningu fasteignagjalda, leiðréttingar, reikningagerð og innheimtu sem fer fram hjá fjármála og stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar.
Gjalddagar verða 8, fyrsti gjalddagi 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar (mars - september). Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ef ekki er greitt fyrir eindaga. Ef gjöld eru samtals lægri en kr. 50.000 er um einn gjalddaga að ræða sem er 1. mars.
Vinsamlegast athugið að ekki eru sendir út greiðsluseðlar, einungis stofnuð krafa í heimabanka. Engin breyting verður hjá þeim sem greitt hafa með boðgreiðslum eða í greiðsluþjónustu.
Ekki eru sendir út álagningarseðlar á pappír en hægt er að nálgast alla álagningarseðla á ísland.is og Þjónustugátt Kópavogsbæjar.
Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin í heild eru greidd til og með 16. febrúar 2024. Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0130-26-74, kt. 700169- 3759.
Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorku-lífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð, og er hann reiknaður út frá álagningu 2023 vegna skatttekna ársins 2022, þ.e. samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7 og 2.8) og fjármagnstekjum samtals (reitur 3.10) Ekki þarf því að sækja um hann sérstaklega.
100% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 6.748.500 krónur.
Hjón með heildarárstekjur allt að 8.622.200 krónur.
75% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 6.748.501 - 6.860.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 8.622.201 – 8.880.000 krónur.
50% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 6.860.001 – 6.973.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 8.880.001 - 9.293.300 krónur.
25% lækkun:
Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 6.973.001 – 7.082.000 krónur.
Hjón með heildarárstekjur á bilinu 9.293.301 - 9.694.800 krónur.
Álagning á atvinnuhúsnæði:
Fasteignaskattur er 1,42% af hús- og lóðamati, vatnsgjald 0,058% og holræsagjald 0,059%, lóðaleiga 180,00 kr. á m² og aukavatnsgjald 54,35 kr á m3.
Að öðru leyti vísast til samþykkta Bæjarstjórnar Kópavogs frá 28. nóvember 2023 og laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 ásamt síðari breytingum.
Álagning á sorphirðu- og eyðingargjaldi er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá álagningu. Álagning fasteignaskatts er kæranleg til yfirfasteignamatsnefndar og skal kæra borin fram innan þriggja mánaða frá álagningu.
Félög og félagasamtök, sem eru fasteignaeigendur í Kópavogi og í húsnæðinu fer eingöngu fram starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf, eiga þess kost að sækja um styrki til greiðslu fasteignaskatts af viðkomandi fasteign.
Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í síma 441 0000 og fyrirspurnir má senda á netfangið : thjonustuver@kopavogur.is.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir á grundvelli laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, að leggja sérstakt sorphirðu- og eyðingargjald á hverja íbúð í Kópavogi á árinu 2023. Gjaldið hækkar og verður kr. 62.500 á íbúð (var 48.400). Sorpgjaldið skal innheimta með fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu.
Ennfremur verði heimilt að leggja á aukatunnugjald samanber töfluna hér að neðan sé óskað eftir fleiri tunnum en eru innifaldar í grunngjaldinu.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin