Hæfing

Með hæfingu er átt við starfs- og félagsþjálfun í þeim tilgangi að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni til starfa og þátttöku í daglegu lífi. Lögð er áhersla á þjálfun sem viðheldur og eykur starfsþrek, sjálfstæði í vinnubrögðum og félagslega færni.

Hæfingarstöðvar

Í Kópavogi eru starfrækt hæfingarstöð og er Líney Óladóttir forstöðumaður.

  • Dalvegur hæfingarstöð, sími 441 9860

Starfsþjálfun

Einstaklingum með fötlun/skerta starfsgetu stendur til boða að koma í tímabundna starfsprófun og starfsþjálfun í Örva. Sótt er um þessa þjónustu í gegnum Vinnumálastofnun. Markmið starfsprófunar og starfsþjálfunar er að meta hæfni einstaklinga til vinnu, auka verkfærni þeirra og veita þeim þjálfun áður en haldið er út á almennan vinnumarkað. Almennt gilda sömu reglur í Örva og á almennum vinnustöðum og reynt er að líkja eftir vinnuaðstæðum og kröfum sem búast má við á almennum vinnumarkaði.

Vernduð vinna

Fatlað fólk getur sótt um vinnu á vernduðum vinnustað, en lög gera einnig ráð fyrir að atvinna með stuðningi standi til boða á almennum vinnumarkaði.

Vernduðum vinnustöðum er ætlað

  • að veita fötluðu fólki launaða starfsþjálfun svo að það verði hæfara til að starfa á almennum vinnumarkaði
  • að veita fötluðu fólki föst störf

Vinnan er launuð samkvæmt sérstökum kjarasamningi sem byggir á samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Hlutverks – samtaka um vinnu og verkþjálfun.

Atvinna með stuðningi

Atvinna með stuðningi (AMS) felur í sér stuðning við fólk sem hefur skerta starfsgetu vegna fötlunar. Það fær aðstoð við að finna heppilegt starf á almennum vinnumarkaði og stuðning við að sinna því.

Atvinna með stuðningi er starfrækt hjá Vinnumálastofnun höfuðborgarsvæðisins, Kringlunni 1, 105 Reykjavík. Síminn er 515 4850. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Hvernig sæki ég um starf?

Vinnumálastofnun tekur á móti öllum umsóknum um verndaða vinnu, hæfingu og dagþjónustu á öllu landinu. Sótt er um á vef Vinnumálastofnunar í gegnum mínar síður atvinnuleitanda hér.

Hvernig sæki ég um sumarstarf?

Í Kópavogi er sumarstarf í Tröð og er fyrir ungmenni á aldrinum frá 17-25 ára. Ítarlegri upplýsingar er að finna á meðfylgjandi slóð https://sumar.kopavogur.is/hrafninn-trod/hrafninn-sumarstarf-7-til-16-ara/trod-sumarstorf-ungmenna-17-til-24-ara/.