- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Á hverju ári efnir lista- og menningarráð Kópavogsbæjar til ljóðasamkeppni undir heitinu Ljóðstafur Jóns úr Vör.
Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Öllum skáldum er velkomið að taka þátt en ljóðið má ekki hafa birst áður.
Ljóði skal skilað í einu eintaki sem merkt er dulnefni. Með eintakinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefni skáldsins sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins.
Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð en öllum öðrum gögnum eytt.
Ljóðstafurinn verður næst afhentur ásamt viðurkenningum sunnudaginn 21. janúar 2024 við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi
Skilafrestur í keppnina er til og með 5. nóvember 2024.
Utanáskrift umslags er:
Ljóðstafur Jóns úr Vör
Menning í Kópavogi
Digranesvegi 1
200 Kópavogi.
Árið 2001 var stofnað til ljóðasamkeppni á vegum Lista- og menningarráðs Kópavogs og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins sem lést 4. mars 2000.
Jón fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000.
Ljóðstafur Jóns úr Vör er veittur að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik.
Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.
Eftirfarandi hafa hlotið Ljóðstaf Jóns úr Vör
2023
Sunna Dís Másdóttir: Á eftir þegar að þú ert búin að deyja
2022
Brynja Hjálmarsdóttir: Þegar dagar aldrei dagar aldrei
2021
Þórdís Helgadóttir: Fasaskipti
2020
Björk Þorgrímsdóttir: Augasteinn
2019
Brynjólfur Þorsteinsson: Gormánuður
2018
Sindri Freysson: Kínversk stúlka les uppi á jökli
2017
Ásta Fanney Sigurðardóttir: Silkileið nr. 17
2016
Dagur Hjartarson: Haustlægð
2015
Ljóðstafur ekki veittur
2014
Anton Helgi Jónsson: Horfurnar um miðja vikuna
2013
Magnús Sigurðsson: Tunglsljós
2012
Hallfríður J. Ragnheiðardóttir: Triptych
2011
Steinunn Helgadóttir: Kaf
2010
Gerður Kristný: Strandir
2009
Anton Helgi Jónsson: Einsöngur án undirleiks
2008
Jónína Leósdóttir: Miðbæjarmynd
2007
Guðrún Hannesdóttir: Offors
2006
Óskar Árni Óskarsson: Í bláu myrkri
2005
Linda Vilhjálmsdóttir: Niður
2004
Hjörtur Marteinsson: Hvorki hér né ...
2003
Ljóðstafur ekki veittur
2002
Hjörtur Pálsson: Nótt frá Svignaskarði