Frístund eftir skóla
Frístund er valkostur þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf eftir að skóla lýkur í umsjá starfsfólks.
Frístund er valkostur þar sem börn dvelja við leik og skapandi starf eftir að skóla lýkur í umsjá starfsfólks.
Opnunartími er frá því að skóladegi lýkur og til kl. 16:30. Boðið er upp á dagaval og hægt er að velja mismunandi langan dvalartíma.
Frístund er opin alla daga sem grunnskólar starfa og einnig allan daginn á þremur af fimm skipulagsdögum skólanna sem eru á skólatíma. Frístundir fá tvo skipulagsdaga á skólaárinu, einn á hvorri önn, í þeim tilgangi að skipuleggja faglegt starf með börnunum og sinna þjálfun og fræðslu frístundaleiðbeinenda.
Opið er alla virka daga í kringum jól og páska frá kl. 8:00 - 16:00 en lokað á Þorláksmessu, aðfangadag og gamlársdag. Sækja þarf um dvöl í jóla- og páskaopnun sérstaklega.
Frístund er ekki opin í vetrarfríum skólanna og lokað er á skólasetningardegi.
Umsókn um frístund er í gegnum þjónustugáttina.
Dvalar- og matargjöld eru innheimt eftir á í upphafi hvers mánaðar.
Íþróttafélögin, Breiðablik, Gerpla og HK eru í samstarfi við Kópavogsbæ um akstur barna frá frístundum á íþróttaæfingar. Skipulagning á akstri vagnanna er í höndum íþróttafélaganna og hægt er að nálgast aksturstöflu á vefsíðum félaganna.
Gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2025
Sækja þarf um vistun í frístund í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar.
Breytingar á vistun eru einnig gerðar í gegnum sömu umsókn. Frestur til þess að segja upp áskrift og sækja um afslátt er til 20. hvers mánaðar. Breytingar taka gildi frá og með næstu mánaðarmótum á eftir. Afsláttur er ekki veittur afturvirkt.
Gildir frá 1. janúar 2025
Lægra gjald greiða einstæðir foreldrar, námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í fullu námi og öryrkjar
með metna örorku (75% eða meira). Námsmenn þurfa að framvísa vottorði til staðfestingar um
námsárangur eftir hverja önn og er afsláttur leiðréttur eftirá fyrir hverja önn. Afsláttur til námsmanna
gildir ekki 1. júní til 31. ágúst, nema foreldrar séu í fullu sumarnámi. Öryrkjar þurfa að setja mynd af
örorkuskírteini sem viðhengi með umsókn.
Sótt er um framangreindan afslátt með því að fara inn í „Umsókn um frístund“ í þjónustugátt. Þegar
komið er inn í Völu kerfið er hægt að sækja um afslátt.
Systkinaafsláttur
Systkinaafsláttur er 30% af dvalargjaldi fyrir annað barn, en 75% af dvalargjaldi fyrir þriðja barn og
100% fyrir fjórða barn eða fleiri. Systkinaafsláttur er einnig veittur ef yngra systkini er í leikskóla eða ef
Kópavogsbær greiðir framlag vegna dvalar systkinis hjá dagforeldri. Systkinaafsláttur reiknast af
dvalargjaldi eldri systkina. Systkinaafsláttur reiknast einnig af lægra gjaldi. Ekki er veittur afsláttur af
matargjaldi.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um systkinaafslátt þar sem hann reiknast sjálfkrafa í skráningarkerfinu Völu
sem heldur utan um skráningar barna hjá dagforeldrum sem og í leikskóla og frístund.
Allar nánari upplýsingar gefur deildarstjóri grunnskóladeildar í síma 441 0000
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin