![Ármann Kr. bæjarstjóri og keppendir í söngkeppni félagsmiðstöðva](/static/news/xs/samfesmynd.jpg)
28.01.2014
Fréttir
Tara Sóley kom, sá og sigraði
Tara Sóley Mobee frá félagsmiðstöðinni Pegasus kom, sá og sigraði í söngkeppni félagsmiðstöðva Kópavogs sem fram fór í Salnum á dögunum. Tara Sóley flutti frumsamið lag „ With you“. Elín Ylfa Viðarsdóttir lék undir á víólu. Níu söngatriði kepptu um þrjú efstu sætin. Mikil spenna ríkti á söngkeppninni og ljóst að margt hæfileikaríkt ungt fólk býr í Kópavogi.