![Frá opnun bókhalds Kópavogsbæjar. Á myndinni eru frá vinstri: Ingimar Þór Friðriksson, forstöðumaðu…](/static/news/xs/hvertfarapeningarnir1.jpg)
16.09.2016
Fréttir
Kópavogur opnar bókhaldið
Kópavogsbær hefur opnað bókhald bæjarins með aðgengilegri veflausn á vefsíðu bæjarins. Þar er að finna upplýsingar um færslur ársins 2014, 2015 og fyrstu 6 mánuði ársins 2016. Kópavogsbær er fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi sem opnar bókhald sitt með þessum hætti og markar viðburðurinn tímamót í stjórnsýslu á Íslandi.