- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Leikskólar í Kópavogi unnu í vetur að verkefnum tengdum máli og læsi í tengslum við verkefnið "Læsi er meira en stafa staut". Verkefnið gekk mjög vel og höfuð börn, foreldrar og starfsfólk leikskólanna gagn og gaman af en afraksturinn var sýndur á opnum húsum leikskólanna í vor.
Verkefnið á upphaf að rekja til þess þegar Kópavogsbær skrifaði undir þjóðarsáttmála (2015) um umbætur í menntun, með áherslu á læsi. Í kjölfarið fór fram vinna við gerð læsisstefu fyrir leik- og grunnskóla í Kópavogi sem leit dagsins ljós um mitt ár 2016. Þó leikskólinn hafi lengi sinnt mál- og læsisörvun vel var ákveðið að skerpa ennfrekar á þeirri vinnu og gera hana sýnilegri. Nýlegar rannsóknir sýna að ef börn fá snemma fjölbreytta örvun tengda máli, tjáningu og læsi hefur það mikil áhrif á áhuga og getu þeirra í námi og þroska. Ábending kom frá leikskólasamfélaginu um að allir leikskólar myndu taka sig saman og vinna að verkefnum tengdum máli og læsi skólaárið 2016-2017. Þróunarsjóður leikskóla styrkti verkefnið.
Heiti verkefnis er: “Læsi er meira en stafa staut”
Markmið og tilgangur verkefnisins var að: