- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Salalaug og Boðalaug eru lokaðar þriðjudaginn 18. ágúst og til kl. 13.00 miðvikudaginn 19.ágúst. Þessa daga er lokað fyrir heitt vatn á hluta höfuðborgarsvæðisins, þar með talið í efri byggðum Kópavogs.
Lokað verður fyrir heita vatnið frá kl. 02:00 þriðjudaginn 18. ágúst til kl. 09:00 miðvikudaginn 19. ágúst næstkomandi. Lokunin nær til Hafnarfjarðar, hluta Garðabæjar, efri byggða Kópavogs og Norðlingaholts í Reykjavík.
Ástæða lokunarinnar er að verið er fjölga heimilum sem fá heitt vatn frá virkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum. Við það þarf að sækja minna af heitu vatni í borholur Veitna í Reykjavík og Mosfellsbæ. Með aukinni notkun á heitu vatni, meðal annars vegna fjölgunar íbúa og þéttingu byggðar, hefur álag á jarðhitageyminn sem fæðir borholurnar á lághitasvæðunum aukist og við því verður að bregðast.
Með þessari aðgerð er tryggt að þessi mikilvægu lághitasvæði nýtast íbúum höfuðborgarsvæðisins til langrar framtíðar.
Til þess að mögulegt sé að gera umrædda breytingu þarf að stöðva rennsli og tæma Suðuræð sem er ein af megin flutningsleiðum á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu.
Gera má ráð fyrir algjöru heitavatnsleysi á umræddum svæðum á meðan lokun stendur.