- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Námskeið fyrir börn og fjölskyldur
- Heimili
- Fólk með fötlun
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
Leikskólinn Lækur fagnaði þrítugsafmæli með afmælisveislu og opnu húsi. Leikskólinn var vígður 11.maí 1994 en þar sem afmælisdaginn ber upp á laugardag var veislan haldin miðvikudaginn 8.maí. Börn og fullorðin áttu góðar stundir í hátíðarhöldunum sem stóðu allan daginn.
"Dagurinn byrjaði á söngvasýningu með Leikhópnum Lottu í boði foreldrafélagsins. Eftir söngvasýninguna þá fóru allir inn að borða pizzu sem rann vel niður í mannskapinn. Seinnipartinn hittumst við öll á Lækjarvöllum og sungum saman nokkur lög og svo var opið hús með afmælisköku, kleinu og fleira hnossgæti. Við þökkum þeim sem sáu sér fært að mæta innilega fyrir komuna," segir á vef leikskólans.
Til hamingju Lækur