Ný upplýsingagátt um Samgöngusáttmála

Fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu er hröð og kallar á margþætta uppbyggingu í samgöngum næstu áratugi. Í uppfærðum Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er megin áhersla lögð á styttri ferðatíma, minni tafir og aukið umferðaröryggi. Uppbygging stofnvega og stórbættar almenningssamgöngur, auk fjölgunar hjóla- og göngustíga eru lykilþættir í að tryggja betri samgöngur.

Verksja.is er ný upplýsingagátt þar sem finna má upplýsingar um allar helstu framkvæmdir sem heyra undir Samgöngusáttmálann. Yfirlitskort, staða framkvæmda, umfang, áætluð verklok, myndefni og ýmiss annar fróðleikur.

Stofnvegir: Samkvæmt uppfærðum Samgöngusáttmála verður ráðist í 6 ný verkefni við stofnvegi á höfuðborgarsvæðinu auk þeirra þriggja sem þegar er lokið. Öll verkefnin eiga að auka flæði og umferðaröryggi. Framkvæmdir við Arnarnesveg eru í gangi en tenging hans við Breiðholtsbraut og Rjúpnaveg verður mikil samgöngubót.

Borgarlínan: Er hágæða almenningssamgangnakerfi (Bus rapid transit) þar sem Borgarlínuvagnar munu að mestu aka í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig munu Borgarlínuvagnar ferðast um umferðarþyngstu svæði höfuðborgarsvæðisins án þess að önnur umferð hafi áhrif á ferðir þeirra. Fossvogsbrú er hluti af 1. lotu Borgarlínu en að auki er gert ráð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendum um brúna. Áætlað er að um 10 þúsund manns muni daglega nýta sér brúna. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist snemma á nýju ári.

Göngu- og hjólastígar: Áætlað að byggja upp alls um 100 km stígakerfi á höfuðborgarsvæðinu, auk undirganga og brúa. Nú þegar er framkvæmdum lokið við um 20 km af göngu- og hjólastígum. Gert er ráð fyrir að um 13% af fjárfestingum Samgöngusáttmálans fari í göngu- og hjólastíga, göngubrýr og undirgöng.

Álag á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins hefur aukist gríðarlega síðustu ár og í hverri viku bætast að meðaltali 70 bílar við umferðina. Sífellt fleiri nýta sér hjóla- og göngustíga og úrbætur í almenningssamgöngum eru lykil atriði við að sporna gegn frekari umferðartöfum.

Áætlað er að árið 2040 verði fjöldi íbúa höfuðborgarsvæðisins kominn vel yfir 300 þúsund, hafi þá fjölgað um 100 þúsund frá 2019. Í ársbyrjun 2024 bjuggu tæplega 244 þúsund manns í sveitarfélögunum sex. Með framkvæmdum Samgöngusáttmálans verður styrkari stoðum rennt undir allar samgönguleiðir, álaginu dreift og þjónusta við íbúa bætt.

Skoða Verksja