Auglýst eftir umsóknum í lista- og menningarsjóð

Umsóknarfrestur um menningarstyrki er til 23.október.
Umsóknarfrestur um menningarstyrki er til 23.október.

Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum í lista- og menningarsjóð. Umsóknarfrestur er til 23. október.

Hlutverk sjóðisins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir til einstaklinga, listhópa, félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana á sviði lista, hönnunar eða arkitektúrs. Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til verkefna ogviðburða sem þjóna íbúum í sem
flestum hverfum bæjarfélagsins og falla að menningarstefnu bæjarins.

Umsækjendur verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. Lista- og menningarráð metur umsóknir og sér um úthlutanir.

Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og nánari upplýsingar eru á upplýsingasíðu um menningarstyrki. Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið: soffiakarls(hja)kopvogur.is.

Einnig er hægt að sækja um styrkinn í Þjónustugátt Kópavogs.