- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Vinnuskóli Kópavogs lokar það sem eftir er dags vegna slæmra loftgæða af völdum gosmengunar.
Börnin fá borgað fyrir daginn.
Leikskólabörn í Kópavogi fara heldur ekki út í dag vegna stöðunnar.
Þá eru leikjanámskeið á vegum bæjarins innandyra í dag.
Mikil mengun mælist nú á höfuðborgarsvæðinu vegna gosmengunar.
Hægt að að fylgjast með stöðu mælinga á síðu umhverfisstofnunar loftgaedi.is
Mælt er með því að börn á leikjanámskeiðum séu inni og íþróttaæfingar utan dyra verði felldar niður.
Mengunin sem er af völdum brennisteinsdíoxíðs, SO2, og fíngerðs svifryks í formi súlfat agna, SO4.
Þetta er ein mesta mengun sem hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu frá því að eldsumbrot hófust á Reykjanesskaga.
Uppfært: Síðdegis dró úr mengun og fóru sum leikskólabörn þá út.