- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Á þriðja þúsund gesta sóttu Vetrarhátíð í Kópavogi heim. Fjölbreytta og skemmtilega dagskrá var að finna í öllum menningarhúsunum og víðar í Kópavogi. Á vetrarhátíðinni var m.a. boðið upp á suðræna tónlist í Salnum með Los Bomboneros, Skólahljómsveit Kópavogs og Kraftgalla, Silent diskó, blöðrusmiðju og bókaspjall með Sigríði Hagalín og Jóni Kalman á Bókasafni Kópavogs, Vísindasmiðju HÍ og Sjónarspil ÞYKJÓ á Náttúrufræðistofu, sólarprentsmiðju og söngleiðsögn í Gerðarsafni og margt fleira.
Hápunktur hátíðarinnar var án efa vörpun á ljóslistaverki Þórönnu Björnsdóttur á austurhlið Kópavogskirkju. Í myndbandsverkinu Tillit vann Þóranna úr nýjum upptökum af augum og augnatilliti tæplega hundrað Kópavogsbúa.