- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Fjölmargar úrbótatillögur og ný verkefni sem snúa að vinnu með börnum og ungmennum hafa litið dagsins ljós hjá Kópavogsbæ í tengslum við aukna samvinnu mennta- og velferðarsviðs. Tilgangur verkefnanna er að þjónustan verði heildstæðari, nái til stærri hóps barna og ungmenna og að meiri áhersla verði á fyrirbyggjandi aðgerðir. Unnið hefur verið að auknu samstarfi frá vorönn 2018.
Þjónusta við börn sem þurfa sértækan stuðning og fjölskyldur þeirra verður aukin. Það felur meðal annars í sér frekari stuðning fyrir börn á almenn sumarnámskeið og að mynda brú milli grunn- og framhaldsskóla þegar kemur að útskrift nemenda sem þarfnast stuðnings.
Meiri fjölbreytni verður í námskeiðum fyrir börn, ungmenni og foreldra þeirra. Boðið verður upp á kvíðanámskeiðin; Klókir litlir krakkar, Klókir krakka og Haltu kúlinu. Einnig verður boðið upp á foreldrafærninámskeiðið PMTO.
Í frístundastarfi verður aukin áhersla lögð á þátttöku barna sem hafa annað móðurmál en íslensku og á þátttöku barna sem þurfa sértækan stuðning. Frístundastyrkurinn verður kynntur og leitað leiða til að sem flestir þekki styrkinn og nýti sér hann.
Í skýrslu samstarfshóps mennta- og velferðarsviðs er verkefnunum lýst en þau eru í heildina 24.
Samstarfsskýrsla mennta- og velferðarsviðs Kópavogsbæjar