- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Tendrað var á jólastjörnunni á Hálsatorgi í Kópavogi í morgun, á Alþjóðlegum degi barna. Börn úr öðrum bekk Kársnesskóla mættu á staðinn fluttu tvö lög í tilefni dagsins, Bjart er yfir Betlehem og Stúlka upp á stól eftir Ljósbjörgu Helgu Daníelsdóttur, 12 ára nemanda í Kársnesskóla.
Þá hefur verið kveikt á öllu jólaseríum Kópavogsbæjar fyrir utan jólatré bæjarins sem stendur við Menningarhúsin í Kópavogi. Tendrað verður á því laugardaginn 28.nóvember, daginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu, eins og venjan er. Aðventuhátíð verður hins vegar ekki haldin með hefðbundnu sniði í ljósi aðstæðna.
Jólastjarnan var fyrst sett upp í fyrra og vakti verðskuldaða athygli enda á fjölförnum stað í miðbæ Kópavogs. Byrjað var að setja upp jólaljós í Kópavogi í lok október og var uppsetningin heldur fyrr á ferð en venjan er, enda ríkar óskir um að lýsa upp skammdegið á tímum Covid-19.