- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Listamenn frá Kópavogi eru þátttakendur á alþjóðlegri menningarhátíð sem nú stendur yfir í þýsku borginni Bonn. Í hópnum eru Rósa Gísladóttir listamaður og Íslenski kammerkórinn sem hefur lögheimili í Kópavogi. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, var af því tilefni viðstaddur opnun sýningar Rósu í Bonn um helgina og flutti þar stutt ávarp.
Í ávarpi sínu þakkaði bæjarstjóri borgaryfirvöldum í Bonn fyrir að bjóða listamönnum frá Kópavogi að taka þátt í menningarhátíðinni. Bæjarstjórinn sagði að það væri vel við hæfi því Kópavogur væri mikill menningarbær. Hér hefði mikil áhersla verið lögð á að styrkja listamenn og hópa og byggja upp menningarhús með öflugri starfsemi.