- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Draumkennd tónlist, draumafangarasmiðja og ævintýraþrautin Draumaslóð er á meðal þess sem boðið verður upp á 17. júní þegar Menningarhúsin í Kópavogi, ásamt listafólki á vegum Skapandi sumarstarfa í Kópavogi, taka saman höndum um metnaðarfulla og fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa undir yfirskriftinni Sumardraumar á sautjándanum.
Dagskráin stendur yfir frá kl. 13 og fram eftir degi með litríkum uppákomum af öllu tagi í bland við skapandi listsmiðjur fyrir alla fjölskylduna. Hægt verður að búa sér til sína eigin þjóðhátíðargrímu, fá tilsögn í koparvírasmíði og teiknimyndagerð, þræða Draumaslóð og leysa draumkenndan draumaratleik auk þess sem í boði verða alls kyns útileikir, sirkusatriði, sumarjazz, barnaævintýri, trúnóhorn og kvíðagjörningur svo fátt eitt sé nefnt. Ókeypis er á alla viðburði dagsins og opið á Reykjavík Roasters í Gerðarsafni frá kl. 08:30 – 18. Dagskráin teygir sig út í Sundlaug Kopavogs þar sem listafólk á vegum Skapandi sumarstarfs flytur brot úr verkum sínum í rjúkandi heitum potti.
DAGSKRÁ Á ÚTISVÆÐI MENNINGARHÚSANNA
13:00-13:30 & 15:00 - 15:30
Stökkönd VST þeytir draumkenndri tónlist.
13:30
Sirkussýning með loftfimleikum og skemmtikraftaköllum.
14:10
WE ARE NOT KIDS. Rakel Andrésdóttir og Andrés Þór Þorvarðarson, flytja lög úr glænýju barnaævintýri.
14:40
Bambaló, Herdís og Ingibjörg Linnett ásamt Sædísi Hörpu Stefánsdóttur flytja vel valda dægurlagasmelli í tilefni dagsins.
15:30
Húlladúllan glensar í áhorfendum og sýnir sirkushúllaatriði.
FORDYRI SALARINS KL. 17
Sumarjazz á þjóðhátíðardeginum. Margrét Eir og hljómsveit, flytja jazzskotna efnisskrá úr ýmsum áttum.
SKAPANDI SMIÐJUR OG LEIKIR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA FRÁ 13 - 16
- Draumafangarasmiðja og Náttúrubók Náttúrufræðistofu Kópavogs.
- Draumaslóð: Ævintýraþraut fyrir alla fjölskylduna.
- Grímusmiðja ÞYKJÓ með Ninnu Þórarinsdóttur og Bókasafni Kópavogs.
- Teiknimyndasmiðja KOMIK. Egill Gauti Sigurjónsson og Íris Eva Magnúsdóttir.
- Koparvírasmíði með Silfursystrum - Gunnhildi Höllu Ármannsdóttur og Sigrúnu Birnu Pétursdóttur.
UPPLESTUR OG UPPISTAND Í REYKJAVÍK ROASTERS, GERÐARSAFNI
13:00-13:15
Katla Ársælsdóttir flytur hluta úr ljóða- og smásagnasafninu 204 Kópavogur,
13:15-13:30
Inga Steinunn Henningsdóttir með sérfræðingaspjall.
13:30 - 13:45
Magnús Thorlacius les úr smásagnahefti sínu sem gengur undir vinnuheitinu Mygla í Kópavogi.
15:00-15:15
Auður Helgadóttir með örsögur um hinseginleika
15:15-15:30
Sviðslistahópurinn OBB - Jökull Smári Jakobsson og Vigdís Halla Birgisdóttir skoða ljóð með einmanaleika, lífið, náttúruna og mennskuna í fyrirrúmi.
GJÖRNINGAR OG UPPÁKOMUR Á ÚTISVÆÐI
- Tómas Óli Magnússon býður upp á málverkagjörning frá 9 – 17
- Sædís Harpa Stefánsdóttir rannsakar eigin kvíða og býður upp á gjörninginn „Kvíðahvísl“.
- DÝNAMÍK - Margrét Lára Baldursdóttir og Margrét Lóa Stefánsdóttir bjóða gestum að fá sér sæti í „Trúnóhorninu“ og spjalla um vináttuna.
- Vegglistahópur Kópavogs, Karen Ýr Sigurbjörnsdóttir, Sindri Franz, Ásdís Hanna Guðnadóttir og Katla Björk Gunnarsdóttir veitir innsýn í vinnuaðferðir sínar.
í Gerðarsafni verður opið frá 10 – 18 en þar stendur yfir sýningin Hlutbundin þrá og er ókeypis á safnið á 17. júní.
Bókasafn Kópavogs og Náttúrufræðistofa Kópavogs verða opin frá 11 – 17. Þar standa yfir fjölbreyttar sýningar sem hægt er að njóta auk þess sem listafólk á vegum Skapandi sumarstarfs, þau Katla Marín Stefánsdóttir, Marina Gerða Bjarnadóttir og Atli Pálsson sýna innsetningar og vídeóverk í tilefni dagsins.
Sundlaug Kópavogs
14:30 – 16
Magnús Thorlacius og Katla Ársælsdóttir koma sér fyrir i heitum potti og lesa brot úr verkum sínum..