Sumar í Kópavogi

Í Kópavogi ofan Guðmundarlundar.
Í Kópavogi ofan Guðmundarlundar.

Efnt verður til fjölmargra viðburða í Kópavogi í sumar undir heitinu Sumar í Kópavogi. Meðal þess sem staðið verður fyrir eru göngur í Kópavogi, tónlistarviðburðir, uppákomur sem ungmenni í Skapandi sumarstörfum stýra og leiðsagnir um listasýningar svo eitthvað sé nefnt.

Viltu njóta sumarsins í Kópavogi? Skoðaðu viðburði sumarsins.