- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Opnað hefur verið fyrir skráningu á sumarnámskeið Kópavogsbæjar.
Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, - leikja - og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Námskeið á vegum frístunda - og íþróttadeildar verða meðal annars hjóla- og ævintýranámskeið, smíðavöllur, skapandi kvikmyndagerð og siglinganámskeið. Sumarstarf í frístundaklúbbnum Hrafninum er fyrir börn og unglinga með sérþarfir og atvinnutengt frístundaúrræði verður fyrir ungmenni með sérþarfir á aldrinum 17 til 24 ára í starfs- og frístundaklúbbnum Tröð.
Götuleikhús Kópavogs og Skapandi sumarstörf er vinnutengt unglinga - og ungmennastarf og munu þau glæða bæinn leik- og tónlistarlífi með ýmsum hætti.
Verið velkomin í litríkt sumarstarf í Kópavogi.
Helstu nýjungar í kynningarefni á sumarvefnum eru námskeið í kvikmyndagerð, sumaræfingar í siglingum hjá siglingafélaginu Ými og listtengd námskeið á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi. Leynileikhúsið býður upp á sumarnámskeið í leiklist og Hugarfrelsi er með námskeið í að efla styrkleika hvers og eins. Auk þess er meira framboð af sumarnámskeiðum í ágúst á vegum íþróttafélaga í Kópavogi. Kvikmyndanámskeið verður einnig í boði í Bókasafni Kópavogs.