- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Lista- og menningarráð Kópavogs-bæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningar-sjóði vegna verkefna á næsta ári. Umsóknum skal skila fyrir 17. nóvember 2018. Hlutverk sjóðsins er að efla menningar-lífið í Kópa-vogi í samræmi við menningar-stefnu bæjarins. Styrkir eru veittir einstak-lingum, stofnunum og listhópum.
Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og afgreiðir þær fyrir árslok.
Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðunni menningarhusin.kopavogur.is. Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðu-maður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið: soffiakarls@kopavogur.is