- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Ríó tríó ásamt Snorra Helgasyni, Erpur Eyvindarson, Dr. Gunni, Salka Sól Eyfeld, Sigtryggur Baldursson, Sigga Beinteins, Stefán Hilmarsson, Eyþór Ingi, Guðrún Gunnarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson auk stórhljómsveitar undir stjórn Þóris Úlfarssonar. Þá stýrir Þórunn Björnsdóttir sameinuðum barnakór barna í Kópavogi og Össur Geirsson kemur fram með Skólahljómsveit Kópavogs en Þórunn og Össur leika lykilhlutverk í tónlistaruppeldi fjölmargra Kópavogsbúa. Einnig flytja sameinaðir kórar bæjarins lag og Gerpla kemur fram í stórbrotnu atriði.
Á tónleikunum verða saga bæjarins og saga íslenskrar dægurtónlistar fléttuð saman með skemmtilegum hætti. Flutt verða íslensk lög úr ýmsum áttum í fjölskylduvænni dagskrá.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs og formaður afmælisnefndar bæjarins segir markmiðið með tónleikunum að sameina Kópavogsbúa fyrr og nú í tónlist og gleði: „Hugmyndin kom til þegar við fórum að ræða alla tónlistarmennina sem búa í eða eru úr Kópavogi, þeir reyndust svo margir og merkilegir að við sáum að það væri kjörið að að stefna þeim saman á stórtónleikum og bjóða bæjarbúum og velunnurum í Kórinn, sem er frábært hús undir stórtónleika.“
Tónleikarnir eru viðamesti viðburðurinn á sextugsafmæli bæjarins en auk þess verða ýmsar uppákomur og viðburðir í bænum í kringum afmælishelgina. Þar má nefna heimatónleika Björns Thoroddsen, sundlaugafjör, afmælisköku í Smáralind, félagsmiðstöðvahátíð unglinga og handverkssýningu í félagsmiðstöðvum eldri borgara. Þá verður sýning leikskólabarna opnuð á Hálsatorgi afmælisdaginn 11. maí en hún er afrakstur metnaðarfulls verkefnis leikskólanna sem staðið hefur yfir í vetur.
Afmælisnefndin Kópavogsbæjar skipa auk Ármanns, Ása Richardsdóttir, Birkir Jón Jónsson, Margrét Friðriksdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Theodóra S. Þorsteinsdóttir.