- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Byrjað er að prýða Kópavogsbæ ljósum en eins og undanfarin ár er hafist handa við að lýsa upp bæinn þegar í október. Þegar hafa verið settar upp ljósaskreytingar við menningarhús bæjarins og á Hálsatorgi í miðbæ Kópavogs.
Smám saman verður aukið við lýsinguna og sett upp ljós við Fífuhvammsveg og á hringtorgum bæjarins svo eitthvað sé nefnt.
Jólastjarnan á Hálsatorgi verður á sínum stað og en lokahnykkur jólaskreytingar í bænum er laugardaginn 27.nóvember þegar tendrað er á jólatré á aðventuhátíð Kópavogsbæjar sem haldin verður venju samkvæmt daginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu.