Símamót í fertugasta sinn

Frá setningu Símamótsins 2021. Mynd/Síminn.
Frá setningu Símamótsins 2021. Mynd/Síminn.

Símamótið í fótbolta fer fram dagana 11. til 14. júlí. Símamótið var fyrst haldið 1985 og verður þetta því 40. mótið í röðinni.

Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna og frá árinu 2021 hefur 8.flokk staðið til boða að taka þátt í Litla Símamótinu. 

Keppendur eru um 3.000 og er þetta stærsta knattspyrnumótið á landinu.

Allir leikir í mótinu fara fram á völlum á félagssvæði Breiðabliks í Kópavogsdal og Fossvogsdal.