Úthlutað úr Barnamenningarsjóði Íslands.
Menningarhúsin í Kópavogi hlutu úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2019, alls 1,8 milljón. Verkefnin í Kópavogi sem hlutu styrk tengjast Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
"Við í menningarhúsum Kópavogs erum afar þakklát fyrir að hljóta úthlutun úr Barnamenningarsjóði Íslands en verkefni okkar tengjast Heimsmarkmiðunum þar sem lögð er áhersla á opið aðgengi að menningu og listum fyrir alla óháð tungumáli. Með það að leiðarljósi verður sérstök áhersla lögð á að ná til barna á leikskóla- og grunnskólaaldri. Það verður frábært að byrja nýtt skólaár á þessu mikilvæga verkefni," segir Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála í Kópavogi.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, voru viðstaddar úthlutunina sem tilkynnt var við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu í dag á degi barnsins.
Samþykkt var að veita 36 styrki að heildarupphæð 97,5 milljónir kr. Fimm manna valnefnd fjallaði um umsóknirnar og rann umsóknarfrestur út 1. apríl sl. og bárust 108 umsóknir.
Verkefnin, sem valnefndin mælir með að hljóti styrki, spanna vítt svið lista og eru lýsandi fyrir víðfeðm áhugasvið barna og ungmenna sem og gróskumikið menningarstarf um landið allt.
Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins í samræmi við ályktun Alþingis á hátíðarfundi 18. júlí 2018 og er átaksverkefni til fimm ára. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.