Lokunartilkynning 19. sept.

Vogatunga milli Digranesvegar og Hlíðarvegar lokuð venga malbikunarframkvæmda.
Vogatunga milli Digranesvegar og Hlíðarvegar lokuð venga malbikunarframkvæmda.

Fimmtudaginn 19. september frá kl. 9:00 til 16:00 er aftur fyrirhugað að endurnýja malbikið á Vogatungu milli Digranesvegar og Hlíðarvegar ef veður leyfir og verður gatan lokuð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleið er um Grænutungu.

Íbúar og gestir í Vogatungu munu verða skerðingu á aðgengi að húsum sínum á meðan framkvæmdum stendur. Mælst er til að íbúar reyni að leggja bílum sínum í aðliggjandi götum sé þess nokkur kostur.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af lokuninni kann að hljótast.