- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Ljóðstafurinn verður afhentur fimmtudaginn 21. janúar 2021 við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi. Þetta er í 20. skipti sem efnt er til ljóðasamkeppni Jóns úr Vör.
Ljóði skal skilað í fjórum eintökum og skal hvert eintak merkt dulnefni. Með fjórritinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefni skáldsins – umslagið skal innihalda upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð en öllum öðrum gögnum verður eytt.
Skilafrestur í keppnina er til og með 4. desember 2020 – póststimpill til og með 4. desember gildir.
Utanáskriftin er Ljóðstafur Jóns úr Vör / Menningarhúsin í Kópavogi / Digranesvegi 1 / 200 Kópavogi. Nánari upplýsingar: menningarhusin@kopavogur.is
Samhliða Ljóðstaf Jóns úr Vör fer fram ljóðasamkeppni á meðal grunnskólanemenda í Kópavogi og verða viðurkenningar veittar 21. janúar 2021. Fyrst var efnt til ljóðasamkeppni á meðal grunnskólanema árið 2012.
Jón úr Vör fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000.
2020
Björk Þorgrímsdóttir: Augasteinn
2019
Brynjólfur Þorsteinsson: Gormánuður
2018
Sindri Freysson: Kínversk stúlka les uppi á jökli
2017
Ásta Fanney Sigurðardóttir: Silkileið nr. 17
2016
Dagur Hjartarson: Haustlægð
2015
Ljóðstafur ekki veittur
2014
Anton Helgi Jónsson: Horfurnar um miðja vikuna
2013
Magnús Sigurðsson: Tunglsljós
2012
Hallfríður J. Ragnheiðardóttir: Triptych
2011
Steinunn Helgadóttir: Kaf
2010
Gerður Kristný: Strandir
2009
Anton Helgi Jónsson: Einsöngur án undirleiks
2008
Jónína Leósdóttir: Miðbæjarmynd
2007
Guðrún Hannesdóttir: Offors
2006
Óskar Árni Óskarsson: Í bláu myrkri
2005
Linda Vilhjálmsdóttir: Niður
2004
Hjörtur Marteinsson: Hvorki hér né ...
2003
Ljóðstafur ekki veittur
2002
Hjörtur Pálsson: Nótt frá Svignaskarði