Landsmót hestamanna 2024

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur sóttu lan…
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur sóttu landsmót hestamanna heim í vikunni.

Landsmót hestamanna er haldið í Víðidal í ár en Landsmótið er einn stærsti íþróttaviðburður landsins. Mótið er nú haldið 25.sinn.

Landsmótið er haldið í sameiningu af tveimur stærstu félögum landsins, Hestamannafélaginu Spretti úr Kópavogi og Hestamannafélaginu Fáki í Reykjavík á svæði Fáks í Víðidal.

Búist er við rúmlega 7.500 gestum á mótið. Stærsti hópurinn eru Íslendingar en á eftir þeim koma Þjóðverjar, Svíar, Danir og Bandaríkjamenn.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, létu sig ekki vanta á Landsmótið og litu við ásamt fleiri góðum gestum.

Vefsíða Landsmótsins