Kennt á þrektæki í Fossvogsdal

Þrektæki í Fossvogsdal.
Þrektæki í Fossvogsdal.

Þann 9. október milli 17:30 og 18:30 mun íþróttaþjálfarinn Jón Óttarr Karlsson kenna á þrektækin í Fossvogi við Reynigrund. Íbúar er hvattir til að fá sér göngutúr, hlaupa eða hjóla í Fossvogin við Reynigrundina og fá leiðbeiningar frá fagaðila um nýtingu þrektækjanna.

Njótum útivistar, hreyfingar og styrktarþjálfunar!

 

Staður: Þrektæki í Fossvogi við Reynigrund.