- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Innritun 6 ára barna, sem fædd eru 2018, fer nú alfarið fram í gegnum þjónustugátt á vef bæjarins.
Opnað hefur verið fyrir skráningu og stendur hún til 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast á milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum.
Haustið 2024 munu skólar hefjast með skólasetningu föstudaginn 23. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.
Athugið að umsóknir fyrir frístund og mötuneyti fyrir komandi skólaár verða auglýstar síðar í vor.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í einkaskólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1. apríl og sækja skal um á þjónustugátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.