- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 23. september kl. 10.00 en það er haldið í tilefni Alþjóðlega hjartadagsins. Í boði eru tvær tímamældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Ræst er kl. 10.00 í báðar vegalengdir inn á Kópavogsvelli en hlaupið er út Kársnes og til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið og eftir 5 km og við endamark. Hlaupaleiðin hefur fengið löglega mælingu.
Verðlaun fyrir fyrsta karl og konu í báðum hlaupum og vegleg útdráttarverðlaun. Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 21. september og fer hún fram á netskráningu. Einungis 400 númer verða í boði.
Hlaupagögn verða afhent í versluninni Hlaupár í Fákafeni 11, milli 11 og 18 frá 11. - 22. september.
ÞÁTTTAKENDUR ERU HVATTIR TIL AÐ KLÆÐAST RAUÐU.
Hjartadagshlaupið er haldið í tilefni Alþjóðlegs hjartadags sem haldinn er í yfir 120 löndum á hverju ári. Markmið Hjartadagsins, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf.