- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Hamraborgarhátíðin verður haldin í fjórða sinn í Kópavogi laugardaginn 31. ágúst. Hamraborginni verður breytt í göngugötu þar sem Kópavogsbúar og aðrir gestir geta gert sér glaðan dag. Þar verður m.a. hægt að gera góð kaup á markaðnum „Beint úr skottinu“ og verslanir og önnur fyrirtæki verða með tilboð á vörum sínum og þjónustu.
Hátíðin hefst kl. 11:00 og stendur yfir til kl. 16:00.
Íþróttafélög í bænum kynna starfsemi sína, íþróttafélagið Glóð verður með pönnukökubaksturskeppni og menningarstofnanir bæjarins verða opnar upp á gátt.
Stefán Karl Stefánsson betur þekktur sem Glanni glæpur verður á svæðinu með kandísflos-vagninn sinn og Sirkus Íslands leikur listir sínar. Ungmenni úr Molanum, ungmennahúsi Kópavogs, verða með skemmtilegar uppákomur.
Allir hafa tækifæri að reyna sig í bandy og blaki hjá HK, misheppnaður töframaður heimsækir okkur og Björn Thoroddsen verður með örtónleika og kynnir jazz- og blúshátíð sína sem verður í Salnum í október .
Hátíðin er haldin í góðu samstarfi Kópavogsbæjar og verslana og fyrirtækja í Hamraborginni. Markmiðið er að lífga upp á miðbæ Kópavogs.
Þeim, sem hafa hug á að selja vörur sínar í sölutjöldum eða bara beint úr skottinu á bílnum sínum, er bent á að hafa samband í gegnum netfangið: hamraborgarhatid(hjá)kopavogur.is.
Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í ágúst 2010 og er talið að þúsundir bæjarbúa hafi komið og notið dagsins í miklu blíðviðri.