Grindvíkingar æfa í Kópavogi

Á myndinni eru frá vinstri: Tanja Tómasdóttir framkvæmdastjóri Breiðablik, Ásgeir Baldurs, formaður…
Á myndinni eru frá vinstri: Tanja Tómasdóttir framkvæmdastjóri Breiðablik, Ásgeir Baldurs, formaður stjórnar Breiðablik, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Þorleifur Ólafsson framkvæmdastjóri UMFG, Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, Klara Bjarnadóttir formaður UMFG.

Meistaraflokkar Grindavíkur í körfubolta karla og kvenna fá æfingaaðstöðu í íþróttahúsi Kársnesskóla í vetur. Ásdís Kristjánsdóttir og Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur undirrituðu samning um efnið í vikunni að viðstöddum fulltrúum Breiðablik og Ungmennafélags Grindavíkur, UMFG.

Verið er að endurnýja gólfefni í íþróttahúsinu og lýkur þeim framkvæmdum í lok september . Húsið mun í kjölfarið nýtast fyrir körfuknattleiksdeild Breiðablik, Grindavíkur og nemendur Kársnesskóla.

Körfuknattleiksdeild Grindavík hefur haft æfingaaðstöðu í Kópavogi frá síðasta vetri og spilað meistaraflokksleiki bæði karla og kvenna í Smáranum í samstarfi við Breiðablik.

„Það hefur verið einstök ánægja að geta liðsinnt Grindvíkingum á krefjandi tímum og góður andi sem hefur fylgt liðinu og stuðningsfólki þess. Grindvíkingar eru alltaf velkomnir í Kópavog,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.

„Við hjá Ungmennafélagi Grindavíkur erum einstaklega þakklát Kópavogsbæ og Breiðablik að búið sé að skrifa undir samstarfssamning. En báðir þessir aðilar eiga miklar þakkir skildar fyrir hlýjar og góðar móttökur frá því ósköpin skullu á í nóvember á síðasta ári og það er þeim að þakka að Grindvíkingar gátu sameinast á ný, í gleði og sorg á nýjum heimavelli,“ segir Klara Bjarnadóttir, formaður UMFG.