- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Gnitaheiði er gata ársins 2024 í Kópavogi . Bæjarstjórn Kópavogs velur götu ársins og er Gnitaheiði 30. gatan í Kópavogi til þess hljóta nafnbótina. Íbúar í götunni komu saman af tilefninu og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs í Kópavogi ávarpaði íbúa og afhjúpaði viðurkenningarskilti sem sett hefur verið upp í götunni. Þá var gróðursettur skrautreynir en venjan er sú að gróðursett er tré í götu ársins.
Gnitaheiði sem liggur niður af Digranesheiði er í Digraneshlíð, hverfi sem var skipulagt á níunda áratug síðustu aldar. Hverfið hefur þá sérstöðu að vera í miklu brattlendi og er afar víðsýnt til suðurs. Áður en uppbygging þess hófst var nokkuð um stórgrýti á landinu en holtagróður ríkjandi með föngulegum trjám og runnum af ýmsum tegundum. Eitt af markmiðum skipulags Digraneshlíðar var að varðveita gróður og fella byggðina að umhverfinu sem gerir götumynd Gnitaheiði mjög skemmtilega.
Gnitaheiði samanstendur af fjórum sérbýlum og raðhúsi sem voru byggð rétt fyrir aldamót en Gnitaheiði 4 til 6 bættist við árið 2016. Í botni Gnitaheiðar er efsti hluta Himnastigans sem liggur niður í Kópavogsdal. Ef farið er út af stiganum til vesturs neðan við Gnitaheiði 8-14 má finna falda gönguleið með margbreytilegum gróðri sem er sannkallaður ævintýrastaður.
Gnitaheiði einkennist af snyrtilegum og vel hirtum lóðum. Það er greinilegt að íbúar götunnar huga vel að umhverfi sínu og eru öðrum íbúum Kópavogs hvatning og fyrirmynd.