Gæsluvellir opnir í sumar

Annar gæsluvallanna í sumar er Lækjarvöllur við Lækjarsmára.
Annar gæsluvallanna í sumar er Lækjarvöllur við Lækjarsmára.

Sumaropnun gæsluvalla í Kópavogi hófst í dag, þann 10. júlí. Tveir gæsluvellir verða reknir í bænum frá 10. júlí til 7. ágúst. Opnunartími vallanna er á milli 09.00 og 12.00 fyrir hádegi og svo frá 13.00 til 16.00 eftir hádegi.

Gæsluvellirnir í ár 2024 eru:

Lækjarvöllur við Lækjarsmára. Sími 618 - 8541.

Við leikskólann Sólhvörf v/ Álfkonuhvarf. Sími 618 - 8542.

Gæsluvellir eru fyrir börn frá 20 mánaða aldri til 6 ára en börnin þurfa að vera vel búin því dvöl á gæsluvelli er útivera. Greitt er fyrir hverja heimsókn og er heimsóknargjald 500 krónur.

Umsjón með gæsluvöllum hefur Sigurlaug Bjarnadóttir deildarstjóri leikskóladeildar.

Nánar um gæsluvelli.