- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Á fundi stjórnar Samtaka Sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þann 23.mars ákvað stjórn að leggja til við aðildarsveitarfélögin samræmdar tillögur er varða fyrirkomulag afslátta af þjónustugjöldum leik-, grunnskóla og frístundaheimila er koma til vegna Covid-19 veiru faraldsins.
Í þeim tilvikum sem þjónusta leik- og grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna verkfalls, samkomubanns, veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall skerðingarinnar.
Þá verður í þeim tilvikum sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda verða gjöld leiðrétt hlutfallslega. Ef foreldrar kjósa að nýta sér ekki þjónustu, t.a.m. með vísan til tilmæla yfirvalda um að foreldrar og forráðamenn haldi börnum sínum heima ef kostur er á hið sama við. Ofangreint nær til þjónustugjalda leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila.
Ákvörðunin er tímabundin og gildir til loka maí.
Endurskoðun fer fram að teknu tilliti til aðstæðna og verður fyrirkomulagið auglýst að nýju eigi síðar en 15.maí n.k.