Lokunartilkynning Smiðjuvegur 8. júlí

Lokunartilkynning Smiðjuvegur 8. júlí
Lokunartilkynning Smiðjuvegur 8. júlí

Áformað er að hefja umfangsmiklar malbiksviðgerðir á Smiðjuvegi, græn gata, mánudaginn 8 júlí og verður götulokun skipt í tvennt. Frá kl. 9:00 til 13:00 verður götunni lokað við Skemmuveg en hægt að komast í götuna frá Smiðjuvegi. Frá kl. 13:00 til 17:00 verður götunni lokað við Smiðjuveg en hægt að komast í götuna frá Skemmuvegi. Allt malbik verður fjarlægt af götunni og þurfa ökumenn að sýna aðgát og stilla hraða í hóf á meðan yfirborð götunnar er óbundið. Viðgerðir á burðarlagi munu halda áfram alla vikuna en ekki er gert ráð fyrir að grípa þurfi til götulokana við þær viðgerðir.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af lokuninni kann að hljótast.

Lokunartilkynning Smiðjuvegur 8. júlí

Lokunartilkynning Smiðjuvegur 8. júlí