Búist við opnun sundlauga í fyrramálið

Sundlaug Kópavogs.
Sundlaug Kópavogs.

Gert er ráð fyrir að sundlaugar í Kópavogi opni kl. 06.30 í fyrramálið.  Loka þurfti sundlaugunum í dag vegna bilunar í Nesjavallvirkjun.

Samkvæmt upplýsingum frá Veitum er virkjunin komin aftur í fulla framleiðslu. Enn er verið að greina orsök bilunarinnar en vonast er til að skerðingum og tilmælum um að spara heitt vatn verði aflétt snemma í fyrramálið.

Starfsfólk sundlauga Kópavogs er undir það búið í samráði við Veitur að opna sundlaugarnar á hefðbundnum tíma í fyrramálið.

 

Nánar