- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Fjólublár bekkur hefur verið settur niður á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina. Fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma.
Settir hafa verið niður fjólubláir bekkir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu
Allir bekkirnir eiga þeir það sameiginlegt að standa við sjávarsíðuna með fallegu útsýni en saman mynda þeir einnig skemmtilega leið í gegnum öll þessi sveitarfélög.
21 september er alþjóðlegur dagur heilabilunar og er þetta liður í vitundarvakningu Alzheimersamtakanna á Íslandi um málaflokkinn sem ber yfirskriftina Munum leiðina. Á bekkjunum er QR kóði sem hægt er að skanna og styrkja um leið samtökin. Hvetjum fólk til að taka fallegar og skemmtilegar myndir af sér á þessum fallegum bekkjum eða bara að setjast niður og njóta útsýnisins.