- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Kópavour fagnaði þeim gleðilega áfanga að fá staðfesta viðurkenningu sína sem Barnvænt sveitarfélag UNICEF í annað sinn í dag, fimmtudaginn 30.maí. Kópavogur hefur unnið ötullega að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína starfsemi frá árinu 2018 og fékk fyrstu viðukenningu sína sem Barnvænt sveitarfélag vorið 2021.
„Börn í Kópavogi eru með sterka rödd í samfélaginu okkar og taka þátt í því að að gera bæinn okkar enn betri. Við erum stolt af því að vera barnvænt sveitarfélag og sýnum það í verki. Í tengslum við innleiðinguna hafa fjölmörg flott verkefni litið dagsins ljós,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Kópavogsbær hefur gripið til fjölmargra aðgerða í tengslum við innleiðinguna. Meðal þeirra eru verkefnið ,,Okkar skóli’’ sem hefur verið innleitt í öllum grunn- og leikskólum en markmið þess er að veita börnum tækifæri til þess að hafa áhrif á skólaumhverfi sitt með beinum hætti. Verkefnið felst í því að hver skóli fær úthlutað upphæð sem nemur 1.000 krónum á hvert barn og börnin sjálf koma sér saman um það með lýðræðislegum hætti hvernig fjármununum er ráðstafað.
Er þetta þannig bæði æfing í lýðræðislegum vinnubrögðum og skilaboð til barnanna um að skoðanir þeirra skipti máli. Sem dæmi má nefna þá ákváðu börnin að bæta aðstöðu með einhverjum hætti, endurnýja leikföng, fá inn ákveðna fræðslu eða bæta tækjabúnað. Þá hefur þátttaka barna í skipulagsmálum verið aukin og samráð við börn með fötlun um þjónustu bæjarins sömuleiðis.
„Kópavogur er vel að endurnýjun viðurkenningarinnar kominn en síðastliðin þrjú ár hafa frekari skref verið stigin í innleiðingunni og fjölmargar aðgerðir verið framkvæmdar réttindum barna til hagsbóta. Sem dæmi má nefna að börnum eru nú tryggðar fjölbreyttari leiðir til þess að hafa áhrif á bæinn sinn, skólastarf og menningarlíf,“ að mati UNICEF.
Sértækur stuðningur við viðkvæma hópa hefur verið efldur með ýmsum hætti í takt við gögn sem aflað hefur verið. Þá er er sérstaklega stutt við tómstundaþátttöku barna af erlendum uppruna og stuðningur við börn sem kljást við skólaforðun verið aukinn.
Í Kópavogi fer Réttindaskólum og Réttindaleikskólum einnig fjölgandi en þess má geta að leikskólar í Kópavogi voru þeir fyrstu í heiminum til að verða réttindaskólar UNICEF. Þá hefur, í takt við tæknivæðingu skólanna, einnig verið unnið mikið frumkvöðlastarf varðandi þróun á námsefni og fræðslu um stafræna borgaravitund sem er mikilvægt til að tryggja réttindi barna á netinu.
Árlegt skóla- og barnaþing hafa nú verið fest í sessi en í framhaldi af þeim eiga börn fund með bæjarstjórn þar sem bæjarfulltrúar hlusta og bregðast við tillögum barnanna og málum komið í farveg.
Nánar má lesa um aðgerðir og verkefni í lokaskýrslu innleiðingarinnar.