- Íbúar
- 0-6 ára börn
- Grunnskólaaldur
- Ungmenni
- Okkar Kópavogur
- Heimili
- Fatlað fólk
- Eldra fólk
- Félagsleg úrræði
- Stuðningur við börn og fjölskyldur þeirra
- Þjónustuver og neyðarsímar
- Mannlíf
- Umhverfi
- Stjórnsýsla
- Umsóknir og eyðublöð
Klara Blöndal úr félagsmiðstöðinni Jemen í Lindaskóla varð hlutskörpust í söngkeppni félagsmiðstöðva í Kópavogi, Félkó en hún söng lagið Hopelessly devoted to you úr Grease.
Árleg söngkeppni Félkó var haldin í Salnum í Kópavogi þann 25.janúar og alls tóku átta félagsmiðstöðvar þátt. Mæting var með besta móti og fylltu áhorfendur Salinn og gott betur.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri setti keppnina ásamt því að veita verðlaun, en henni til aðstoðar voru Sigvaldi Egill Lárusson, formaður menntaráðs og Karen Lind Stefánsdóttir, varaformaður ungmennaráðs . Keppnin var hin glæsilegasta og hæfileikar unglinganna framúrskarandi, en sigurvegararnir munu keppa í söngkeppni Samfés sem sýnd verður á Rúv í maí.
1.sætið hreppti Klara Blöndal úr Jemen (Lindaskóla), í 2.sæti var Vanessa Dalila Maria Rúnarsdóttir Blaga úr Kúlunni (Hörðuvallaskóla), og í 3.sæti var Aldís María Sigursveinsdóttir úr Fönix (Salaskóla).
Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að sjá þær á stóra sviðinu í maí.